Padel

Getustigsskalinn í Padelhöllinni er frá 1-7, þar sem 1 er byrjandi og 7 er atvinnumaður eða keppnisspilari á mjög háu stigi.

Getustigið þróast með tímanum út frá opnum leikjum í kerfinu og mótum á vegum Padelhallarinnar. Þegar niðurstöður úr leikjum eru skráðar inn og allir spilarar eru með getustig skráð, uppfærist getustigið út frá úrslitum og mótherjum. Getustigið er uppfært einu sinni á dag.

1.0 - 2.0 | Byrjendur
Nýr í padel eða hefur spilað lítið. Enn að læra reglur, staðsetningar og helstu skot.

2.0 - 3.0 | Byrjendur+
Hefur farið í nokkra tíma eða spilað nokkrum sinnum. Getur haldið boltanum gangandi á rólegum hraða. 

3.0 - 4.0 | Meðal
Hefur spilað töluvert og er með ágætis leikskilning, þekkir helstu skot og staðsetningar á vellinum.

4.0 - 5.0 | Meðal+
Reyndur spilari sem spilar reglulega og er með góðan leikskilning. Getur spilað hraðan leik og er farinn að nota flóknari skot og meiri taktík.

5.0 - 6.0 | Lengra komnir
Sterkur spilari með góða tækni og mikla reynslu. Getur spilað hraðan og stöðugan leik á háu stigi.

6.0 - 7.0 | Keppnisstig
Mjög sterkur og keppnisvanur spilari með mikla reynslu og góðan taktískan skilning.